Færsluflokkur: Utanríkismál/alþjóðamál
25.10.2012 | 10:09
Kappræður milli forsetaframbjóðenda USA - í heild sinni
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 10:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.9.2012 | 13:21
Arabaheimurinn logar
Frá því að youtube c-myndin "Sakleysi múslima" var sett inn á youtube hefur allt farið í bál og brand meðal öfgamanna innan múslimatrúarinnar og gífurleg mótmæli hafa brotist út víða, sjá mynd.
Það er löngu vitað að múslimar bregðast illa við þegar spámaðurinn þeirra er teiknaður eða lítilsvirtur á einhvern hátt eða annan. Nú þegar hafa yfir 40 manns dáið og hundruðir slasast í þessum mótmælum og ekkert lát virðist vera á þeim, frekar eru þau að færast í aukana. Samtök eins og Al-Qaeda, Hezbollah hafa gefið frá sér yfirlýsingar þar sem þeir fordæma birtingar af spámanninum. Mynd frá twitter.com user @jttozer

Það hefur verið talað um að leikararnir í þessari umræddu mynd hafa ekki haft hugmynd um að myndin ætti að fjalla um eða lítilsvirða múhammeð. En aftur á móti hefur líka verið talað um að myndin sjálf hafi verið endurgerð ("dubbed") og það er frekar augljóst þar sem í hvert sinn sem múhammeð er nefndur er búið að málsetja og oftar en ekki frekar illa.
Sendiherrar vestrænna landa hafa verið kallaðir heim frá mörgum löndum og þeir sem eftir eru halda sig innandyra. Bandarískir og Ísraelískir fánar eru brenndir, byggingar eru skemmdar og brenndar, hervæðing á götum úti, flugbönn í lofthelgum, mótmæli fyrir utan sendiráð (einnig í Belgíu, Frakklandi, Danmörku og Bretlandi) og að auki er verið að reisa veggi í kringum sendiráð Bandaríkjanna í Cairo, myndin er frá Twitter/@khadrania.

Þrátt fyrir allt þetta og gríðarlega óstöðugt ástand þá stoppar það ekki franskt blað að gefa út tölublað með þessari forsíðu, mynd tekin frá AFP photo/Thomas Coex
Í kjölfar þessarar birtingar hefur Frakkland kallað heim sendiherra og starfsfólk í sendiráðum í 20 löndum.

Og að þetta sé ekki nægilega slælmt þá eru almenningssamgöngur í New York (New York City Transit) að fara að birta þessa auglýsingu á að minnska kosti 10 lestarstöðvum í næstu viku, þar sem múslimar eru gerðir að jafningjum villimanna. Sjá meðal annars þessa grein; http://nyc.indymedia.org/en/2012/09/120512.shtml og grein BBC; http://www.bbc.co.uk/news/world-us-canada-19665225. Hér er virkilega verið að reyna á málfrelsi og prentfrelsi, en er það þess virði á þessari tímasetningu?

Svo hafa flestir eflaust orðið varir við að "War Games" eru hafnir í persaflóa þar sem gríðarlegur fjöldi herskipa er að safnast saman við Hormuz sund; http://www.telegraph.co.uk/news/worldnews/middleeast/iran/9545597/Armada-of-international-naval-power-massing-in-the-Gulf-as-Israel-prepares-an-Iran-strike.html. Svo hafa Ísraelar sem og Íranir sett á svið sína eigin "War Games" in kjölfarið.
Það er svo sannarlega hægt að segja að farið sé að hitna í kolunum og merkilegt verður að sjá hver viðbrögðin við auglýsingunni í New York verða, en eitthvað segir mér að fjölmiðlar á Íslandi verði ekki þeir sem að upplýsa almenning um þetta.
Gott að enda með þessari frábæru teiknimynd.

Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.9.2012 | 08:55
Occupy Wall Street eins árs í gær 17.09.2012
Það veldur mér alltaf vonbrigðum hvaða fréttir ná til stærstu fréttamiðla Íslands og/eða heimsins. Til að mynda voru hópmótmæli í New York í gær þar sem yfir 180 mótmælendur voru handteknir. Ástæða mótmælanna í gær voru vegna eins árs "afmælis" occupy wall street hreyfingarinnar en hún á rætur sínar að rekja til mótmæla sem áttu sér stað í fyrra aðallega gegn fyrirtækjagræðgi, launamisrétti og spillingarmætti peninga í stjórnmálum.
Eftir að OWS hreyfingin kom saman og tjaldaði eftirminnilega í Zucotti Park í New York í fyrra hefur fjöldinn allur af OWS hreyfingum og mótmælum sprottið upp um gjörvöll Bandaríkin sem og öðrum stórborgum heimsins. Forsprakkar hreyfingarinnar telja sig vera rödd þeirra 99% fólks í heiminum og hafa þeir barist gegn vaxandi mun á skiptingu auðvaldsins milli ríkra og fátækra í Bandaríkjunum. OWS hreyfingin í New York átti undir vök að verjast í Nóvember í fyrra þar sem lögreglan í New York réðst að tjaldbúðum mótmælenda, þar sem um 200 manns voru handteknir. Aðrir mótmælendahópar OWS um Bandaríkin hafa einnig orðið fyrir fjöldahandtökum í kjölfarið.
Það ber að nefna að 46.7 milljón manns í Bandaríkjunum treysta á "food stamps" matarmiða fyrir matarinnkaupum og yfir 15 milljón þeirra eru börn. Hér er áhugaverð grein frá CNN um málið, http://money.cnn.com/2012/06/25/news/economy/food-stamps-ads/index.htm. Svo ber að nefna að það er talið að 3,5 milljón manna í Bandaríkjunum eru án heimilis meðan 18,5 milljón heimili standa auð, http://blog.amnestyusa.org/us/housing-its-a-wonderful-right/.
Er vaxandi spenna milli Ísraels og Írans möguleg lausn á þessu vandamáli? http://www.telegraph.co.uk/news/worldnews/middleeast/iran/9545597/Armada-of-international-naval-power-massing-in-the-Gulf-as-Israel-prepares-an-Iran-strike.html
Af hverju þetta kemst ekki í fjölmiðla meðan aðalfrétt morgunblaðsins núna er "ökumenn undir áhrifum" og vísir talar um að "Danir tapa stórfé á örum frumsýningum kvikmynda" þykir mér afar merkilegt.
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt s.d. kl. 09:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)